
úff ... 4 heilir dagar !
eins og flest ykkar sem þekkja mig vita var ferðinni minni seinkað frá 12. ágúst til 30 ágúst vegna þess hvað ég var komin seint í fjölskylduferlinu eða eitthvað svoleiðis.
En hverjum er ekki sama um það ! Núna er ég komin með fjölskylduna mína og mun ég búa í ca. 20.000 manna bæ sem kallast Marple Valley og er hann 30min í burtu frá Seattle, Washington.
Ég er ekki komin með mikið af upplýsingum um fjölskylduna en veit að í henni er Pabbi sem heitir Willam Wylie og er fæddur 1970 og kona hans Terra Wylie og er fædd 1975. Veit ekki enn þá ef ég á systkyni en það kemur allt í ljós :D
Svo mun ég stunda nám við Tahoma High School, en hann er í bænum Covington sem er ca. 8 km frá Maple Valley. Í honum er 7000 nemendur sem mér finnst sjúklega mikið miðað við gamla góða 600 nemenda Kvennó !
Núna er svo stutt í að ég fari og mun ekki koma neitt blogg fyrir en ég er bara komin út :D